Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Ísafjörður

Hótel Ísafjörður

Ísafjörður, Vestfirðir
HótelVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

 

Hótel Ísafjörður er þriggja stjörnu þægilegt heilsárshótel í höfuðstað Vestfjarða, Ísafirði. Hótelið er við Silfurtorg í hjarta bæjarins steinsnar frá allri þjónustu og höfninni. Í næsta nágrenni eru einnig sundlaug, upplýsingamiðstöð, söfn og strætisvagnar. Hótelið er allt innréttað í ljósum þægilegum litum og mjög vel í stakk búið til að þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptamanna. Á hótelinu er öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir ferðamenn, fjölskyldur og fólk í viðskiptaerindum. Öll herbergin eru með sturtu, hárþurrku, sjónvarpi, síma, útvarpi og kaffi/te setti auk þess sem  frí háhraða nettenging er á öllum herbergjum og veitingasölum.  Hótelið er allt reyklaust.

Á veitingastað hótelsins Við Pollinn er lögð áhersla á gæði jafnt í þjónustu sem matreiðslu og metnaður er lagður í að nýta hráefni úr nágrenninu  á sem fjölbreyttastan hátt.  Á Hótel Ísafirði er góð aðstaða til að taka á móti smærri og stærri hópum.

Starfsfólk hótelsins leggur sitt af mörkum til að gera dvölina bæði ánægjulega og þægilega og hefur faglegan metnað til að takast á við viðfangsefni af ýmsu tagi. Persónuleg þjónusta og heimilislegt andrúmsloft hótelisins og nálægð við einstæða náttúru skapar öðruvísi umgjörð.

Hótel Ísafjörður

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?