Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Fosshótel Hekla

Fosshótel Hekla

Suðurland
BændagistingHótelVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Fosshótel Hekla er með bestu sveitahótelum sunnan heiða. Það er einungis í klukkustundar fjarlægð frá höfuðborginni en þó í nálægð við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands, svo sem Eyjafjallajökul og Fimmvörðuháls. Frá hótelinu er einnig stutt í hálendið, Landmannalaugar, Kjöl og Sprengisand. Fosshótel Hekla stendur miðsvæðis á Skeiðunum þaðan sem útsýni er til allra átta. 

Á hótelinu eru 45 þægileg og vel búin herbergi. Inn af anddyri hótelsins er hlýleg, vel búin setustofa með svölum til suðurs þar sem gott er að slaka á og njóta kvöldsólarinnar eða horfa á stjörnubjartan himinn og jafnvel sjá norðurljósin í notalegum heitum pottum í garði hótelsins. Höfuðáherslan á veitingastað Fosshótel Heklu er að bjóða upp á góðan mat úr hágæða hráefni úr heimabyggð. Mikið af hráefninu kemur því beint frá bændum á Suðurlandi. Veitingastaðurinn er rúmgóður og bjartur og tekur allt að 110 manns í sæti og hentar því vel fyrir ýmis hátíðahöld svo sem brúðkaup, árshátíðir og fleira.

  • 46 herbergi
  • Morgunverður í boði
  • Veitingastaður og bar
  • Fundar- og ráðstefnuaðstaða
  • Ókeypis þráðlaust net
  • Heitir pottar
Lokað 19. des – 28. des.
Fosshotel Hekla er hluti af Íslandshótelum.
Fosshótel Hekla

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?