Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Kea – Keahotels

Hótel Kea – Keahotels

Akureyri, Norðurland
HótelVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Hótel Kea er eitt af þekktustu kennileitum Akureyrar, staðsett í hjarta bæjarins þar sem stutt er í þjónustu, verslanir, söfn, kaffihús og veitingastaði. Hótelið býður upp á vel búin herbergi, veitingastað, bar, ráðstefnu- og fundarsali.

Á Hótel Kea eru 104 smekklega innréttuð herbergi í klassískum stíl sem endurspeglar sögu hótelsins, en það er eitt af lengst starfandi hótelum landsins. Herbergin eru búin helstu nútíma þægindum eins og sjónvarpi, síma, útvarpi og míníbar. Þar að auki er frí internettenging, kaffi- og tesett, sérbaðherbergi með sturtu eða baðkari, hárblásari, baðvörur, RB rúm, skrifborð, strauborð og straujárn inn á öllum herbergjum. Fyrir þá sem kjósa rýmra herbergi er boðið upp á Superior og Deluxe herbergi ásamt Svítu á efstu hæð með útsýni fyrir miðbæ Akureyrar og Eyjafjörð.

Á Hótel Kea eru þrír ráðstefnu- og fundarsalir sem rúma allt að 120 gesti. Salirnir eru allir vel tæknivæddir, búnir nýjust tækjum og búnaði til að halda fundi eða ráðstefnu. Salirnir henta einnig fyrir allt að 150 manna veislur hvort sem tilefnið er árshátíð, brúðkaup, afmæli, erfidrykkja eða aðrir viðburðir.

Veitingastaður hótelsins, Múlaberg Bistro & Bar, er staðsettur inn af hótelbarnum. Þar setja matreiðslumeistararnir saman íslensk úrvals hráefni og bistro matargerð undir frönskum, ítölskum og dönskum áhrifum svo úr verður einstakt ævintýri fyrir bragðlaukana.

Hótel Kea er eitt af tveimur Keahótelum sem staðsett er á Akureyri. 

Hótel Kea – Keahotels

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?