Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Center Hotels Arnarhvoll

Center Hotels Arnarhvoll

Höfuðborgarsvæði, Reykjavík
Barir og skemmtistaðirHeilsurækt og SpaHótelVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Nálægðin við höfnina, Hörpu og dásamlega útsýnið yfir miðborgina, Faxaflóann og fjöllin blá gera Arnarhvol að einstökum dvalarstað.  Yfirbragð hótelsins er afar nútímalegt, allt frá fallegri gestamóttöku til herbergjanna sem eru 104 talsins, öll björt með nútíma þægindum.

Morgunverður er innifalinn með öllum herbergjunum og er hann borinn fram á efstu hæð hótelins á veitingastaðnum SKÝ Restaurant & Bar.  Útsýnið á efstu og jafnframt áttundu hæð er þannig að Skálafell, Móskarðshnjúkar, Esjan öll og Akrafjall blasa við en hinu megin er einstaklega notalegur veitingastaður þar sem boðið er upp á gómsætar veitingar.  Einstök forréttindi fyrir þá sem kunna að meta góðan mat og fallegt útsýni. Veitingastaðurinn er opinn alla daga til miðnættis og á laugardögum er boðið upp á lifandi tónlist sem gerir laugardagskvöldin sérstaklega skemmtileg. Á hótelinu er að finna heilsulind með heitum potti, gufubaði og slökunarrými.  Boðið er upp á nudd í heilsulindinni.  

  • 104 herbergi
  • Morgunverður innifalinn
  • Ókeypis þráðlaust internet
  • Heilsulind
  • Veitingastaðurinn SKÝ Restaurant & Bar
  • Bar
  • Einstakt útsýni yfir miðborgina og Faxaflóann 

Hluti af Center Hotels hótelunum sem öll eru staðsett í hjarta miðborgar Reykjavíkur.

Center Hotels Arnarhvoll

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?