Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Ferðaþjónustan Vatnsholti

Ferðaþjónustan Vatnsholti

Suðurland
BændagistingGistiheimiliHótel
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Vatnsholt er uppgerður fallegur  sveitabær  sem stendur við Villingaholtsvatn. Frá Vatnsholti er eitt víðasta útsýni í byggð á landinu. Þar sést vel til  Vestmannaeyja, Eyjafjallajökuls, Tindfjalla, Heklu og Hellisheiðar.  Vatnsholt er í aðeins  16 km fjarlægð frá Selfossi , 8 km frá Þjóðvegi 1 og ca 60 km frá Reykjavík.
Við bjóðum upp á notalega aðstöðu fyrir ferðamenn, hjón, einstaklinga eða fjölskyldur sem vilja hvíla sig og njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða.  

Vatnsholt er fjölskylduvænn staður þar gestum gefst kostur á að kynnast lífinu í sveitinni. Á bænum eru Krummi, tófa, hundar, hestar, kettir, kanínur, hænur, geitur og holdakýr.  
Hægt er að leigja bát og veiðistangir til að veiða í Villingaholtsvatni og/eða fuglaskoðun.
Reiðhjól eru einnig til leigu á staðnum fyrir þá sem vilja skoða Flóann á eigin afli.
Stórglæsilegt leiksvæði fyrir börn og fullorðna, með veglegum útileiktækjum.
Í Vatnsholti er veitingastaður sem reynir eftir fremsta megni að vera með ferskt og gott hráefni frá bænum eða næsta nágrenni.  
Frábær aðstaða fyrir allt að 70-80 gesti í björtum og notalegum herbergjum. Bjóðum einnig upp á fjölskylduherbergi fyrir allt að 6 pers. Við gerum okkar besta til að gera dvölina ánægjulega.  

Ferðaþjónustan Vatnsholti

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?