Hótel Laxárbakki býður upp á fjölbreytta gistimöguleika, gistingu í fallegum herbergjum með baðherbergi, eldunaraðstöðu og svölum, einföldum herbergjum með sameiginlegu baðherbergi og svo í huggulegum sumarbústað. Virkilega góð staðsetning fyrir dagsferðir um vesturland, á bökkum Laxár í Leirársveit og rétt við þjóðveg 1.
Á veitingastaðnum okkar bjóðum við upp á íslenskan mat og drykki af barnum.