Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Brimnes Hótel

Brimnes Hótel

Norðurland, Ólafsfjörður
HótelSumarhúsVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Brimnes hótel og bústaðir er staðsett í Ólafsfirði í Fjallabyggð við Ólafsfjarðarvatn, en um leið mitt í jökulskornum Tröllaskaganum. 60 kílómetrum norðan við Akureyri og 18 kílómetrum norðan við Dalvík.
Átta finnskir bústaðir standa við norðurenda Ólafsfjarðarvatns. Heitir pottar eru á veröndum þeirra allra sem og eldunaraðstaða.
Hótelið stendur nokkrum metrum norðan við bjálkahúsin og þar er boðið upp á gistingu í 11 tveggjamanna herbergjum með baði, setustofu, veitingasal, bar og háhraða nettengingu.

Það er nóg við að vera, bæði á staðnum og í næsta nágrenni.  Verið velkomin!

 

Brimnes Veitingahús (opinn yfir sumartíman).
Við sérhæfum okkur í norrænum mat og erum stolt af.  Staðsetningin segir sitt.  Hálendið við hafið; Tröllaskaginn og sjórinn.  Þegar hópar eiga í hlut, bjóðum við upp á tveggja eða þriggja rétta máltíðir á mjög sanngjörnu verði, komum með uppástungur en förum að sjálfsögðu einnig að séróskum viðskiptavina.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.

Brimnes Hótel

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?