Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Frost og funi boutique hotel

Frost og funi boutique hotel

Hveragerði, Suðurland
Hótel
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Frost og Funi boutique hotel í Hveragerði er í þægilegri fjarlægð frá ys og þys borgarlífsins og er opið allt árið. Við tökum bæði á móti einstaklingum og hópum og leggjum áherslu á að gestir okkar eigi notalega dvöl, hvort sem ætlunin er að eiga rómantíska helgardvöl, hittast til skrafs og ráðagerða, eða bara slaka á frá önnum hversdagsins. Öll aðstaða er útbúin með hvíld og vellíðan gesta í huga.

 

Boðið er upp á fundaraðstöðu með sjónvarpi sem tengist fartölvum og flettitöflu sem að nýtist vel fyrir litla hópa.

Herbergi
22 herbergi eru á hótelinu og öll eru þau útbúin með þægindi og vellíðan gesta í huga, þau hafa öll internet-tengingu og sér baðherbergi. Herbergin eru öll útbúin fallegum og þægilegum húsgögnum sem að gefa þeim sérstakan stíl. Allir hótelgestir hafa aðgang að sundlaug, heitum pottum og inni sána, án endurgjalds, sem eru á hótelsvæðinu. Kjörið er að slaka á þar eftir langan dag. Einnig er aðgangur að morgunmatarhlaðborði innifalinn í hótelgistingu. Flest herbergin hafa útsýni yfir ánna Varmá og fjallanna þar í kring og sýnir þar með dæmi um séríslenska náttúru. Veitingahúsið Varmá er svo á hótelsvæðinu og er opið gestum og gangandi allt árið.  

 

Frost og funi boutique hotel

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?