Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Aldan

Hótel Aldan

Austurland, Seyðisfjörður
HeimagistingHótelSvefnpokagistingVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Herbergi Hótel Öldunnar eru í þremur húsum;  tveimur umhverfis lónið í miðju bæjarins. Þessum tveimur byggingum skiptum við upp í tvö hótel; Hótel Ölduna – til húsa í virðulegu fyrrum verslunarhúsi við brúna – og Hótel Snæfell, sem hvor um sig hafa að geyma 9 herbergi hvert með sinn sjarma og stíl.  

Þriðja hús Öldunnar hefur í nær heila öld hýst bankann í Seyðisfirði. Upphaflega hafði það þjónað sem eitt af bestu hótelum landsins. Mikil áhersla hefur verið lögð á að viðhalda sögulegum anda hússins, en um leið tekið tillit til nútíma þæginda. Þar eru í boði 7 tveggja manna og 2 þriggja manna herbergi.

Í vor fékk veitingastaður Öldunnar töluverða andlitslyftingu og hefur nú hlotið nafnið “Nordic” sem leggur áherslu á að nota hráefni frá Íslandi og ekki síst héðan frá Austurlandi. 

Í flestum er rými fyrir auka rúm og einnig er hægt að hýsa sex manna fjölskyldu í einu herbergi. Sveigjanleg hönnun gerir kleift að setja saman sum herbergin þannig að þau myndi „svítur“ eða fjölskylduherbergi fyrir 4 til 6 persónur, án þess að bæta við auka rúmum.  Næsta sumar verðum við samtals með 22 herbergi auk tveggja fullbúinna íbúða sem hvort getur hýst allt að 6 gesti. Íbúðirnar eru staðsettar rétt hjá gamla bankanum í húsi sem hýsti fyrsta skóla kaupstaðarins.  Þar sem við erum lítið og annasamt hótel treystum við okkur því miður ekki til að blokkbóka herbergi yfir sumarið. Við vonum að þetta muni ekki hafa áhrif á samstarfið og hvetjum ykkur til hafa samband við okkur í því tilfelli.

Hótel Snæfell er þriggja hæða bárujárnsklætt timburhús byggt 1908. Það stendur við lónið þar sem er að finna fjölskrúðugt dýralíf fugla, laxfiska og oft á tíðum má sjá sel forvitnast um hagi Seyðfirðinga. Húsið var upprunalega pósthús bæjarins og árið 1943 var því breytt í hótel. Í gegnum árin hefur það gengt mörgum hlutverkum, m.a. hefur verið þar skóvinnuverkstæði, leigubílastöð og stór veitingastaður. Húsið hefur einnig verið heimili nokkurra fjölskyldna áður en það varð hótel. Meðal íbúa þar var Ingi T. Lárusson okkar ástsæla tónskáld.

Hótel Aldan

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?