Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Flókalundur

Hótel Flókalundur

Vestfirðir, Vesturbyggð
HótelTjaldsvæðiVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Hótel Flókalundur er lítið fjölskyldurekið sumarhótel í Vatnsfirði á sunnanverðum Vestfjörðum, um það bil 6 km frá Brjánslæk þar sem ferjan Baldur kemur að landi. Hótelið er miðsvæðis á Vestfjörðum og stutt í margar af helstu náttúruperlum landsfjórðungsins.

Vatnsfjörður er friðland og þekktur fyrir náttúrufegurð og fjölbreytt lífríki. Þar er mikil veðursæld og því gaman að njóta útiveru í gróðurríkum firðinum.

Sendu okkur tölvupóst til að fá nánari upplýsingar.

Hótel Flókalundur er opinn

frá 20. maí – 15. september

Gisting

Hótel Flókalundur er heimilislegt sveitahótel með 27 notalegum eins og tveggja manna herbergjum. Öll herbergin eru með sér baði (wc/sturta), auk þess sem rúmgóð setustofa með sjónvarpi er á hótelinu. Hjólastólaaðgengi er í einu af herbergjunum.

 

Veitingar

Veitingasalur er opinn frá 7:30 til 23:00. Morgunverðarhlaðborð er frá 7:30 til 10:00 og í hádegi er boðið upp á rétt dagsins ásamt smáréttarseðli sem hægt er að panta af allan daginn. Hægt er að fá mat af kvöldverðarmatseðli og smáréttarseðli til 21:00. Barinn er opinn til 23:00. 

 

Bensínstöð og verslun

Hægt er að kaupa eldsneyti, olívörur og flest annað smálegt sem bíllinn þarfnast.  Verslunin er opin alla daga frá 11:00-18:00 þar sem fæst matvara, kol, gas ásamt því helsta sem þörf er á í ferðalagið.

 

Tjaldsvæði

Tjaldsvæði er stutt frá hótelinu þar er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna og fellihýsi. Hægt er að komast í rafmagn og í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturtur og aðstaða fyrir uppvask. 

Hótel Flókalundur

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?