Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Holt

Hótel Holt

Höfuðborgarsvæði, Reykjavík
Barir og skemmtistaðirHótelVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Hótel Holt er fyrsta flokks fjögurra stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. Hótelið, sem byggt var af hjónunum Þorvaldi Guðmundssyni og Ingibjörgu Guðmundsdóttur, var opnað árið 1965 og hefur verið í eigu fjölskyldunnar síðan. Það hefur allt frá upphafi verið þekkt innanlands sem utan fyrir gestrisni og hlýju, notaleg herbergi og framúrskarandi þjónustu. Á hótelinu eru 42 herbergi, þar af fjórar svítur. Herbergin eru innréttuð í sígildum stíl og búin öllum helstu nútíma þægindum. Hótel Holt er einstakt  á sína vísu, en það státar af stærsta einkasafni íslenskrar myndlistar sem prýðir bæði sali og herbergi hótelsins.

 Veitingastaður hótelsins, Gallery Restaurant, er í fremstu röð veitingahúsa á Íslandi og hefur verið frá upphafi. Húsið hefur alið af sér helstu fagmenn stéttarinnar, hvort heldur sem er í matreiðslu eða framreiðslu, í gegnum árin og hafa margir þeirra unnið til verðlauna. Gallery Restaurant tekur um 70-75 manns í sæti.

Hótel Holt

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?