Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Ísland

Hótel Ísland

Höfuðborgarsvæði, Reykjavík
Hótel
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

HÓTEL ÍSLAND – SPA OG WELLNESS er staðsett nálægt miðborginni sem og Laugardalnum, sem er aðal miðstöð íþrótta og afþreyingar í höfuðborginni. Hótelið býður upp á 135 vel útbúin herbergi sem sum hver bjóða upp á útsýni yfir fjallgarðinn sem umlykur Reykjavík. Hótel Ísland er fyrsta hótelið á Íslandi sem býður upp á heilsulind.

Morgunverðarhlaðborð er borið fram alla daga frá 06:30 til 10:00. Fyrir þá sem eiga morgunverð innifalin en eru með brottför fyrir opnunartíma veitingastaðar geta óskað eftir morgunverðarpoka í móttöku við brottför.

Veitingastaðurinn okkar, Niu Restaurant & Bar, er nútímalegur veitingastaður, þar sm áhersla er lögð á gæði úr hágæða staðbundnu hráefni. Opið alla daga og má finna frekari upplýsingar á http://www.niu.is/ 

Heilsulindin okkar er fullkominn leið til að halda jafnvægi milli líkama og sálar. Í lúxus heilsulindinni eru þægindi þín og vellíðan i fyrirrúmi. Njóttu úrvals endurnærandi meðferða í heilsulindinni eða slakaðu á í heitum potti nú eða köldum potti, bara hvað hentar þér. Við bjóðum einnig upp á flot í lauginni okkar og gufubað. Opið frá 08-20 á virkum dögum og 16-20 um helgar fyrir hótelgsti.

Allir gestir okkar fá ókeypis aðgang að líkamsræktarherberginu okkar og þeir sem hafa áhuga á jógatímum eru velkomnir að skrá sig í opna jógatíma meðan á dvöl þeirra stendur. Allar upplýsingar um jógatímana eru veittar í móttökunni við innritun. Við bjóðum jafnframt upp á einka jógakennslu ef þess er óskað í tíma.

Á hótelinu okkar er ókeypis bílastæði allt um kring fyrir hótelgesti okkar, strætóskýli eru í innan við 5 mínútna göngufjarlægð. Rútuferðir á flugvöll eða í skoðunarferðir fara beint frá hótelinu.

Starfsfólk okkar í móttöku leggur mikið upp úr því að aðstoða við að skipuleggja þessa ferðina þína með þér og aðstoða við að gera dvöl þína eftirminnilega. 

Hótel Ísland

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?