Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hótel Rauðaskriða

Hótel Rauðaskriða

Húsavík, Norðurland
BændagistingHótelSumarhúsVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Hótel Rauðaskriða er fjölskyldurekið þriggja stjörnu sveitahótel, staðsett við þjóðveg 85.  Staðsetningin býður uppá hentugar dagsferðir til áhugaverðra staða á Norðurlandi og má þar nefna staði eins og  Akureyri,  Eyjafjörð,  Tjörnes,  Mývatn,  Dimmuborgir,  Dettifoss,  Ásbyrgi,  Hljóðakletta og  Goðafoss, ásamt hvalaskoðunarferðum frá Húsavík.

Gestir okkar geta einnig farið í stuttar eða langar hjóla- og gönguferðir í nágrenni hótelsins og notið fróðleiks um náttúru og sögu.  Ennfremur getum við útvegað  veiðileyfi og hestaleigu ef óskað er.

Við erum 3 stjörnu hótel, og höfum  hlotið  umhverfisvottun Norræna Svansins.  Við bjóðum upp á 37 herbergi með baði og 5 með sameiginlegu baði.  Á herbergjum með baði er aðstaða til að hita kaffi/te, gervihnattasjónvarp og hárþurrka.  Við hótelið eru heitir pottar.  Í björtum veitingasalnum er boðið uppá morgunverð og kvöldverð og vínveitingar auk þess sem við útbúum nestispakka sé þess óskað.

Opnum fyrir hópa eftir samkomulagi fyrir utan auglýstan opnunartíma.

Hótel Rauðaskriða

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?