Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Hunkubakkar

Hunkubakkar

Kirkjubæjarklaustur, Suðurland
BændagistingGistiheimiliHótelKaffihúsSumarhúsVeitingahús
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Ferðaþjónustan á Hunkubökkum býður upp á 20 herbergi í heildina, þar af 6 tveggja manna herbergi með sameiginlegu baði, 6 bjálkahús sem eru 3 og 4 manna með sér baði og 8 tveggja manna herbergi með sér baði.

Húsin eru nálægt aðalbyggingunni, þar er að finna gestamóttöku er ásamt veitingastað sem opinn er á kvöldin og á daginn hluta sumars, einnig er morgunverður borinn fram þar.

Veitingastaðurinn er með góðu úrvali af réttum frá býli og héraði.  Við erum sauðfjárbændur og bjóðum upp á okkar eigið gómsæta grillaða lambakjöt á matseðli.

Hægt er að panta mat og kaffihlaðborð fyrir hópa – Veitingaaðstaðan tekur ca 50 manns í sæti.  

Umhverfi Hunkubakka er rómað fyrir náttúrufegurð og milt veðurfar. Einnig eru margar gönguleiðir í kring og staðsetningin miðsvæðis fyrir stærstu náttúruperlur landsins eins og Fjaðrárgljúfur , Laka, Fagrafoss, Langasjó, Sveinstind, Eldgjá, Landmannalaugar, Skaftafell og Jökulsárlón.

Smellið hér til að bóka gistingu

Hunkubakkar

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?