Kortavefur

Kortavefur

  • Skráningar
  • Log In
Primary
  • Skráningar
  • Log In
Sundhöllin Selfossi

Sundhöllin Selfossi

Selfoss, Suðurland
Sundlaugar
0 Reviews
Add Photos

Lýsing

Sundhöll Selfoss er staðsett í miðbæjarkjarna Selfoss í göngufæri frá helstu verslun og þjónustu. Við sundlaugina er næg bílastæði allt í kring fyrir gesti. Í Sundhöll Selfoss er barna- og 18 metra innilaug, 25 metra útilaug, barnalaug með þremur rennibrautum, vaðlaug, vatnsgufa, sauna og heitir og kaldir pottar. Fjórir búningsklefar eru við sundhöllina, tveir inniklefar og tveir útiklefar, sér búningsaðstaða er fyrir fatlaða í inni- og útiklefum. Ný viðbygging var opnuð sumarið 2015 sem gjörbylti allri aðstöðu við Sundhöllina en bætt var við barnalaug inni, nýrri afgreiðslu og stærri búningsklefum.

Heilsuræktarstöðin World Class hefur aðstöðu á efri hæð Sundhallarinnar en sameiginleg afgreiðsla er fyrir hana og sundlaugina. Sundhöll Selfoss er ein af stærstu sundlaugum á Suðurlandi en árlega koma um 200 þúsund gestir í laugina.  

Opnunartími Sundhallar Selfoss eins allt árið.

Opnunartímar
Virka daga frá 06:30 til 21:30
Helgar 09:00 til 19:00

Verð:
Gjaldskrá Sundlauga Árborgar 2020
Gildir frá 1.janúar 2020 

Fullorðnir (18 – 66 ára):
Stakt skipti 1030 kr.
10 skipta kort 4.200 kr.
30 skipta kort 8.500 kr.
Árskort 30.000 kr. 

Börn (10 – 18 ára):
Stakt skipti börn 160 kr.*
10 skipta barnakort 1.200 kr.
30 skipta barnakort 3.400 kr.
Frítt fyrir börn yngri en 10 ára, miðast við 01. júní
*Börn búsett í Sveitarfélaginu Árborg fá gefins árskort 

Leiga:
Leiga sundfata 800 kr.
Leiga handklæða 800 kr.
Tilboð leiga handkl/sundföt/sund 1700 kr. 

Öryrkjar og eldri borgarar:
67 ára og eldri búsettir í Sv. Árborg 0 kr.
67 ára og eldri búsettir utan Árborgar 200 kr.
Öryrkjar fá frían aðgang en verða að framvísa korti

Afgreiðslutími
Opnunartími Sundhallar Selfoss eins allt árið. 

Virka daga frá 06:30 til 21:30
Helgar 09:00 til 19:00

Sundhöllin Selfossi

Iceland4You

Hafa samband

Myndir

© Iceland4You 2020.
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram
  • Vimeo

Hey, velkomin aftur!

Lost your password?